Mikið er nú gott að vera heima hjá sér..
Þrátt fyrir endalausa gestrisni hennar Völu systur þá er nú alltaf svo voðalega gott að koma heim, sérstaklega eftir að maður hefur keyrt í hálfgerðri stórhríð mikinn part af leiðinni, en við svoleiðis aðstæður kemur áratuga Vestfjarðareynsla sér vel... maður er að sjálfsögðu vel æfður í "stikuakstri" og hugsar hlýjar hugsanir til Vegagerðarmanna við hverja stiku sem kemur í ljós í kófinu..
En, við fórum semsagt suður sl. helgi, ég, Dagbjört afmælisbarn, Hekla og Gígur. Erindið var alþjóðleg hundasýning HRFÍ í reiðhöllinni í Víðidal, þar var voða gaman sem fyrr, mikið af fallegum hundum og alltaf jafn gaman að hitta annað hundabilað fólk. Heklu og Gíg gekk vel, fengu bæði afbragðs umsagnir, Gígur í eldri hvolpaflokki og Hekla í unghundaflokki. Hekla fékk íslenskt og alþjóðlegt meistarastig og varð þriðja í grúppunni sem er bara alveg frábært.
