Írskir úlfhundahvolpar? Já... vonandi..
fimmtudagur 7.jan.10 22:55 - Lestrar 553
Ég vonast til að geta parað þau Heklu og Gíg þegar Hekla lóðar næst, sem ætti að vera seinnipartinn í apríl. Það þýðir að það gætu verið hvolpar hér um mánaðamótin júní/júli.
Var að uppfæra undir Þórdunu ræktun og setti inn allar upplýsingar um þau, skannaði inn ættbækur og alla dóma, svo fólk hefði nú eitthvað að skoða, hafi það áhuga.