Hótel mamma á Ísafirði.

Hef verið bara ófyrirgefanlega löt að uppfæra síðuna. Meira að segja Helga vinkona mín í Miðengi er hætt að reyna að skamma mig og þá er nú mikið sagt. En, það er nú svosem ekki eins og ekkert hafi nú skeð. Ég dreif mig með þrjú börn, Úlf og Dagbjörtu sem eru nú svosem engin börn lengur og svo hana Oddnýju Þóru systurdóttur mína, sem er nú alveg barn ennþá, og tvo hunda vestur á Ísafjörð helgina fyrir páska. Mikið óskaplega var fallegt veðrið þegar við keyrðum niður í ísafjarðardjúpið af Steingrímsfjarðarheiðinni, ég fer ekki ofan af því að hvergi nokkursstaðar á landinu getur verið jafn mikið logn og fyrir vestan. Sól skein í heiði og allt var svo gersamlega ósnortið í drifhvítri mjöllinni. *Andvarp*.. mér finnst hvergi eins fallegt og "heima"
Ég fór á hverjum morgni upp á dal með Heklu og Syrpu að leyfa þeim að hlaupa frjálsum og það var ekki amalegt í þessu yndislega veðri sem var meira og minna allan tímann. Ég var ekki með neina myndavél en tók þessa mynd á símann minn sem útskýrir gæðin. Það hefði nú ekki verið ónýtt að vera með góða myndavél í þessum aðstæðum, og enn betra væri ef maður myndi nú kunna eitthvað á svoleiðis tæki.
Við keyrðum heim á annan í páskum aldeilis bara rangeyg af sælu eftir dvölina á hótel mömmu/ömmu vestur á Ísafirði.
Svo er að sjálfsögðu ein lítil frétt í dag, en hann Baldur litli bættist í hópinn hér á Grísará. Hann er undan henni Skrámu systur hennar Syrpu, og Sunnusteins Canis. Hann er 8 vikna síðan á laugardaginn og kom noður í flugi ásamt bróður sínum sem kemur til með að búa á Dalvík ásamt gotbróður Urðar. Baldur er afar ljós eins og nafnið gefur til kynna, mér finnst trúlegt að hann verði mjög leirljós.