Grisará

Grísará

Fréttir

Gleðilegt ár, og takk allir fyrir það gamla!

Eins og fyrri daginn þá er brokkgeng uppfærslan á síðunni.  En, við erum hérna.  Áttum góð jól með stórfjölskyldunni, fullt út úr dyrum hér á Grísará um áramót, frábært bara.

Á nýju ári er það helst að frétta að Gígur er loksins kominn í einangrun, hann er hress g glaður þar þrátt fyrir tábrot.  En brussunni tókst að brjóta á sér tá á hægri afturfæti á föstudeginum áður en hann kom til landsins.

Við fengum lánaða myndavél og fórum út í garð að taka myndir af Heklu, gerðum heiðarlega tilraun til að taka myndir fyrir Regine, Sofie og fleiri.  Er með þær í séralbúmi í Heklu albúmi.

En, semsagt, gleðilegt árið frá okkur Heklu og öllum hinum hér á Grísará.

hekla110109.15_640



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning