Framkvæmdir í kreppu
þriðjudagur 1.des.09 22:24 - Lestrar 540
Silla heyrði einhvern sérfræðing segja í útvarpinu að maður ætti alls ekki að setja sparifé í banka, eða kaupa hlutabréf, heldur ætti maður að nota það í framkvæmdir. Hún beið þá ekki boðanna, heldur eyddi öllu okkar sparifé í nýja eldhúsinnréttingu. Hún er núna búin að koma við í ÍKEA og fá heilt hlass af flötum pökkum og núna er hún byrjuð að rífa gömlu innréttinguna í sundur. Efri skáparnir fóru í kvöld:
Svo byrjaði silla að skrapa, fylla, sparsla og mála:
Efri skáparnir verða settir upp þegar Silla er búin að mála.