Endalaus sumarsæla..
Það hefur verið alveg hreint út sagt yndislegt sumar það sem af er. Gróðurinn í garðinum æðir bara áfram og það eru 18-20 stig dag eftir dag. Við erum búin að setja girðingu við pallinn fyrir framan hús, þannig að nú getum við drukkið morgunkaffið þar og fengið okkur hádegisverð í góðum friði ;) Mamma.. það eru myndir í albúminu.
Annars er það helst að frétta að Gunila ræktandinn hans Gígs var í heimsókn hjá okkur og kom með á sýningu. Hekla varð íslenskur meistari og Gígur gerði sér lítið fyrir á sínum fyrsta afmælisdegi, fékk sitt fyrsta meistarastig, og vann svo bara Heklu og endaði annar besti í grúppu...!! það hefði sko mátt slá mig niður með fjöður ég sver það... það var hrikalegt að sýna hann, hann var alveg örvita af greddu enda Hekla hálóða, og hann lét, alveg án ýkju, eins og hálfviti í hringnum. Hann hegðaði sér raunar mun betur í grúppunni enda Hekla þá löngu komin út í bíl.. En, hér er mynd af þeim skötuhjúum í veðurblíðunni í garðinum heima nú í dag. Og ef þið gáið voða voða vel þá má finna hana Kríu litlu þarna enhversstaðar.
